spacer.png, 0 kB
 

 


 

 

 

 

 

spacer.png, 0 kB
                  

Miðvikudagur 15. Október 2008
Skrifað af Moli

www.bilavefur.net lifir áfram.

Góðir styrktaraðilar gáfu síðunni áframhaldandi líf á dögunum er þeir styrktu síðunna og uppihald hennar rausnarlega næsta árið eða svo.

Þessir aðilar eru Kvartmíluklúbburinn og Ökulind, Ökukennsla.

Einnig langar mig til þess að óska eftir myndum frá ÞÉR til þess að "Scanna" og setja á síðuna. Þær myndir sem koma til greina eru myndir af Bílasýningum í gegn um árin, gamlar myndir ofan af Kvartmílubraut, Sandspyrnumyndir, gamlir Amerískir bílar, þá helst "Muscle Car" bílar (árg. 1965-1975) Einnig koma til greina flest allar tegundir af USA bílum og árgerðir frá 1955-2008 sem teknar hafa verið hérlendis.

Ég yrði viðkomandi afar þakklátur og myndi ég um leið setja þær myndir sem ég mun fá lánaðar hjá viðkomandi og brenna á CD disk.

Hægt er að hafa samband við mig á bilavefur@internet.is
 

Fimmtudagur 1. Maí 2008
Skrifað af Moli

Fyrsti rúntur Krúser klúbbsins 2008.

Fyrsti rúntur Krúser hópsins var í kvöld, 1. Maí 2008 í fínu veðri. Nokkrir nýjir bílar létu sjá sig og vonum að þetta sé aðeins smjörþefurinn af því sem koma skal í sumar. Krúser veður sem og sl. ár með samkomur að Bíldshöfða 18 öll fimmtudagskvöld allt árið um kring hvernig sem viðrar. Húsið opnar kl. 20:00 og er öllum frjálst að mæta, skoða flotta bíla og ræða málin.

Hér að neðan er hægt að sjá myndir frá samkomunni og rúntinum í kvöld.

 http://www.bilavefur.net/album/thumbnails.php?album=240
 

 

Mánudagur, 28. Apríl
Skrifað af Moli

Myndaalbúm komið í lag.
 

Laugardagur, 3. Nóvember 2007
Skrifað af Moli

Uppfærlsu lokið. - 11.091 myndir.

Já, loksins gríðarmikilli vinnu lokið við að scanna, flokka og uppfæra vefinn. Alls setti ég inn 4.263 myndir og telja myndirnar á síðunni nú 11.091 mynd.
Reyndar kemur fyrir að sama myndin sé nokkuð oft á vefnum en þó í mismunandi albúmum.

Það fóru nýjar myndir í langflest myndaalbúmin, en einnig bætti ég við eftirfarandi myndaalbúmum:

1964-1966 Plymouth Barracuda
1967-1969 Plymouth Barracuda
1966-1967 Dodge Charger
1967-1969 Dodge Dart
1970-1976 Dodge Dart
1966-1967 Dodge Charger
1970-1976 Plymouth Duster
1968-1970 Plymouth Satellite/Roadrunner
1971-1973 Plymouth Satellite/Roadrunner
1965-1967 Pontiac Tempest/LeMans/GTO
1968-1972 Pontiac Tempest/LeMans/GTO
1967-1970 Mercury Cougar
2005-???? Chevrolet Corvette
HOT RODS

Myndaalbúm stakra Ökutækja:

1968 Ford Mustang Fastback - Moli
1968 Ford Mustang - Gunni Seyðisfj.
1969 Chevrolet Nova / Böddi / Danni
1968 Ford Torino - Gummari
1968 Pontiac Firebird 400 - Aggi
1969 Dodge Coronet Superbee
1969 Ford Mustang - H Code - Keflavík
1970 Dodge Challenger Sixpack Convertible
1970 Ford Mustang - Rauður
1970 Ford Mustang - Brettakantabíllinn
1970 Ford Mustang Mach 1 - Shaker
1970 Ford Mustang Mach 1 - Kiddi
1970 Ford Mustang Mach 1 - Leon
1971 Pontiac Firebird - Siddi
1973 Ford Mustang Mach 1 - Helgi
1975 Pontiac Firebird - Keli
2000 Ford Mustang Shelby GT-500
2006 Ford GT
2007 Ford Mustang California Special

Bílasýningar

1979-1980 Bílasýning Kvartmíluklúbbsins - Laugardalshöll
1984 Bílasýning Kvartmíluklúbbsins - Kolaportið
1987-1988 Bílasýning Kvartmíluklúbbsins - Kolaportið
1991 Bílasýning Kvartmíluklúbbsins - Ráðhús Reykjavíkur
1994 Bílasýning Kvartmíluklúbbsins - Rafha húsið
1999 Bílasýning Fornbílaklúbssins - Laugardalshöll
Bílasýningar Bílaklúbbs Akureyrar, 17 Júní 1977 - 1980
Bílasýningar Bílaklúbbs Akureyrar, 17 Júní 1981 - 1996
Bílasýningar Bílaklúbbs Akureyrar, 17 Júní 1997 - 2004

Ég hef fengið lánaðar myndir frá ýmsum aðilum og langar mig til að þakka sérstaklega eftirtöldum aðilum fyrir veittan stuðning og fyrir að lána mér myndir til að scanna og hafa á vefnum......

án ykkar hefði þetta ekki verið hægt.


Anton Ólafsson - 1.159 myndir komu frá honum sem hann sjálfur scannaði! ÞÚSUND ÞAKKIR ANTON!
Eiríkur í Bílamálun B.B - 6 stór myndaalbúm af sér í lagi gömlum myndum.
Sigurjón Andersen - MOPAR safnið stækkaði til muna sem ásamt fleirum.
Árni "útlagi" Hjaltason - Sandspyrnumyndir og myndir frá 1990-1995
Gummari - Allt milli himins og jarðar.
Leon Már Hafsteinsson - Bílasýningar
Guðmundur Bjarnason -
Ýmsar myndir, þó flest allt gamalt.
 

Meiri kostnaður er nú orðin til að halda síðunni uppi því hún er sífelt að stækka og því þarf meira pláss fyrir myndirnar og það kostar sitt. Erfiðlega hefur gengið að fá styrktaraðila á síðuna til að halda henni uppi og datt mér þessvegna í hug, EF þið viljið láta ykkar að mörkum og sjá til þess að hún verði uppi í framtíðinni að leggja til pening til styrkar henni, þá eru frjáls framlög eru mjög vel þeginn.

Hægt er að leggja inn á:
Reikning 0372 - 13 - 110026
Kennitala:
250581- 4679

 

 
spacer.png, 0 kB
spacer.png, 0 kB
spacer.png, 0 kB